07september
Jæja... örugglega allir lööööngu hættir að lesa þetta bull mitt, enda hefur verið skortur á því undanfarna mánuði

Sumarið var frábært, Binnsan er byrjuð í 1. bekk og Gríslan komin í 10. bekk, ótrúlegt en satt!!
Setti inn fullt af myndum, allt símamyndir reyndar svo gæðin eru misgóð, og svo setti ég líka grobb í handavinnualbúmið.. hvað annað?

Verið góð hvert við annað og endilega kvittið
16mars
Hvaða óskaplegur fólksfjöldi hefur litið inn í dag! Kvitta pípúl!! 
oooog hvað skal segja..... görnin eru óspart notuð as júsúal, smellti í tvenna vettlinga handa litla pung um helgina og 3ja parið á prjónunum... ekki veitir af... svo er skokkur handa Binnsessunni kominn vel á veg... og hitt og þetta....
Mosi ætlar suður í borg óttans á morgun að klára íbúðina, hann fær að kíkja á görn fyrir frúnna ef tími vinnst til.... húsið er komið á sölu á inni.is, það kom ljósmyndari fyrir helgi og myndaði hér allt að utan og innan.. engin smáræðis tiltekt í tilefni af því, við erum sko að tala um að dóti var hent undir rúm og sófa og upp í skápa... eða þannig
.....þyrfti að fá svona ljósmyndara oftar í heimsókn.................................
Ammmmælið nálgast óðfluga og bara gott um það að segja, vonast alltaf til að verða vitrari með aldrinum en það gengur hægt.. Binnsessan spurði hvað ég vildi fá í afmælisgjöf og ég sagðist vilja fá þæg börn... henni fannst það argasta frekja og bauðst frekar til að teikna handa mér mynd... kannski ég ætti að splæsa í söngnám, einn stubburinn "minn" rústaði svoleiðis egóinu mínu einn daginn þegar ég var að setja hann út í vagn.. hann segir ekki mörg orð svona dags daglega en þennan daginn fékk ég heil tvöööö.... ég var að koma honum fyrir og söng einhverja þvælu fyrir hann á meðan og allt í einu heyrðist HÆTTU... ég leit forviða á hann og spurði "á ég ekki að syngja?"
........."NEI"...........................
Svo mörg voru þau orð!
Amen... 
"Ég óska þér yndislegra minninga til að hjálpa þér á erfiðum tímum".